sunnudagur, nóvember 02, 2008

Spítalaálfurinn okkar






Já hún litla skott fór á spítala í 3 daga. Kom heim í gær (laugardag).

Þetta byrjaði allt aðfaranótt mánudagsins með ælupest hjá henni, ældi nokkrum sinnum og var mikið safnað í þvottavélina þá nótt ;-)

Svo ældi hún næstu nótt einu sinni og héldum við að þetta væri bara að verða búið... en ekki var það svo gott. Hún fékk háan hita á miðvikudeginum og rauk uppí 40,1 þá um morguninn. Við fórum með hana á læknavaktina um hádegið og þar var kíkt á hana og vildi læknrinn meina að ekkert amaði að henni, þeas. ekkert í hálsi, eyrum osvfr.. þannig að hún bað okkur að fylgjast með henni og passa að hún drykki nóg.

Seinnipart miðvikudags mældum við litla skottið okkar og var þá hitinn kominn í 40,8 stig! okkur fannst það nú orðið ansi hár hiti og hringdum í lækninn sem við hittum og hún sagði fátt annað en að við gætum komið á læknavaktina með hana ef við vildum...

Sem betur fer þekkjum við til barnalæknis sem við hringdum í og ráðfærðum okkur við.. hann sagði okkur að fara með hana niðrá Barnaspítala hringsins og að hann myndi hringja á undan okkur. Við vorum komin þangað um fimm leitið seinnipart mið og var snúllan okkar rannsökuð í bak og fyrir og rétt fyrir miðnætti var okkur tjáð að hún væri með sýkingu í þvagi og það yrði að leggja hana inn.

Við vorum sem sagt í þrjá sólahringa með hana niðrá spítala og fékk hún sýklalyf í æð og var rannsökuð enn betur. Svo var það í gær í hádeginu sem hún fékk réttu sýklalyfin í gegnum munninn og þau héldust niðri þannig að okkur var óhætt að fara með hana heim.

Ofan á allt þá veiktist mamman að gubbupest og fleira og lá einn af þessum þrem dögum alveg domm... svo smitaðist það yfir á litlu skvís og byrjaði hún að æla og með niðurgang ofan í sýkinguna þannig að þetta var heldur betur mikið fjör!

Í dag sunnudag er hún orðin ágætlega hress, er dugleg að taka lyfin sín en er með niðurgang og borðar lítið sem ekkert.. þá er nú gott að vera enn á mömmubrjósti :-)

Mamman er að skríða saman eftir sína pest en pabbi er lagstur með svæsna ælupest :-(

já það er ástand hjá okkur Hlíðarásálfunum...


Látum fylgja með nokkrar myndir af skottinu okkar á spítalanum...

Heilsukveðjur frá okkur öllum og vonandi hafið þið það sem allra best!!