Fórum í bústað í Húsafelli í ó-blíðu haustveðri. Rok, rigning, snjór - en engu að síður mjög gaman :-)
Afi var með og við höfðum það virkilega gott. Skruppum í göngutúra í "veðrinu" og þá var hressandi að komast í heitan pott strax á eftir.
Lególas er núna eina kisan hjá okkur, Fróði kallinn fór í fóstur (komst reyndar í algera sælu samkvæmt því sem við höfum frétt og sjáum). Hann nýtur sín mun betur svona í friði, enda var Fróði ansi duglegur að bæla hann. Virkilega sæt mynd af honum að kúra hjá mömmu og í Bratz töskunni hennar EB.
![]() |
| 20091010 - c |
Hlíðarás-álfarnir.



