
Jæja, er ekki kominn tími fyrir smá fréttir af okkur Hlíðarásálfunum?
Tíminn er svo fljótur að líða, marsmánuður hálfnaður og nú styttist aldeilis í vor og sumar :-) ekki leiðinlegt það...
Harpa Rós er búin að stækka og þroskast svo mikið síðustu mánuði að við trúum því varla hvað hún er orðin stór stelpa! Það er alveg svakalega gaman að vera með henni. Hún er ákveðin lítil dama og veit alveg hvað hún vill og er svo ljúf og góð að hún bræðir alla :-) mömmu finnst gaman að fara með hana í búðir, bæði matarbúðir og líka fatabúðir hehe.. Harpa Rós hefur skoðanir á hlutunum og hefur gaman að því að skottast með þegar mamman á erindi í búð, þá segir mín bara: MEEÐ! búðina, KAUPA! hehe lærir þetta snemma ;-)
Það má segja að stúlkan sé bara orðin altalandi! allavegana er það fátt sem hún ekki segir og hún gerir sig vel skiljanlega.
Við fjölskyldan og afi fórum í sumarbústað í byrjun mars og Harpa Rós lærði strax að segja "sumarbústað" og þegar litla skottið var búin að prufa heita pottinn sagði hún "SUMARBÚSTAÐ, HEITA POTTINN" mjög skírt alla ferðina enda vildi hún helst bara vera í heita pottinum að busla!! Svo tók hún uppá því að grípa á lofti þegar pabbi sagði þegar við vorum nýkomin í sumarbústaðinn: já afi kallinn er kominn... þá sagði mín hátt og skýrt! "AFIKALLINN" og notar það enn í dag þegar afa ber á góma hjá henni sem er mjööööög oft, hún er algjör afastelpa :-)
Hún er líka mikil ömmustelpa og segir AMMA í sífellu og finnst voða gaman að reyna að opna töskuna sem amma á :-) það hlýtur að leynast eitthvað spennandi þar!
Svo tengir hún ótrúlegustu hluti, þegar við tölum um Einar frænda þá segir Harpa Rós EDDA strax á eftir :-) og sama er með fleiri í fjölskyldunni.. til að mynda Fríðu frænku (föðursystur) sem býr í Sviss. Hún man vel eftir henni og þegar við vorum hjá afa löngu eftir að Fríða var farin til Sviss eftir jólafríið sagði Harpa Rós allt í einu: "FÍÍA" sem þýðir auðvitað Fríða :-)
Af stóru krökkunum er allt fínt að frétta, þau standa sig ótrúlega vel í skólanum og fá mjög góðar einkunnir og erum við voða stollt af þeim eins og alltaf :-)
Þröstur Almar lék í skólaleikriti um daginn og fórum við öll með afa að sjá hann leika. Hann stóð sig alveg frábærlega strákurinn, flottur leikari :-)
Jæja, látum þetta duga í bili af okkur, skellum inn nokkrum nýjum myndum af sumarbústað og fleiru við tækifæri :-)
Hér er ein af skvísunni litlu í Smáralindinni í síðustu viku :-)
Knús og hamingja til ykkar allra elsku vinir nær og fjær*
Ykkar Hlíðarás-álfar
