miðvikudagur, desember 31, 2008

Gleðilegt nýtt ár !

Við ætlum að fylgja fordæmi minnsta fjölskyldumeðlimsins og hoppa glöð og ánægð inn í nýtt ár.

Þetta ár sem er að líða hefur verið nokkuð viðburðaríkt, sér í lagi í tengslum við okkar nánustu, með djúpum lægðum um mitt sumar - en allt stefnir í ljómandi góðan endi.

Við notum því gamla góða frasann - peningar eru ekki allt ! - og segjum við alla sem við þekkjum, njótið þess sem virkilega skiptir máli !

Kær kveðja, Hlíðarás-álfarnir :-)

mánudagur, desember 29, 2008

Jólin 2008

Hæ, hæ.

Jæja, jólin afstaðin og áramótin að skella á :-)

Það er margt skemmtilegt búið að bralla hjá okkur í desember og um jólin, mikið bakað, föndrað og leikið sér á heimilinu. Stóri strákurinn okkar varð 11 ára! Stóra stelpan okkar bjó til kartöflukonfekt og færði öllum bekknum sínum, ekkert smá flott hjá henni! Litla skottið okkar er farin að tala voða mikið og er hin ljúfasta. Hún lærir ný orð á hverjum degi held ég bara. Hún gerir sig mjög skiljanlega og ef við skiljum hana ekki þá heldur hún áfram að tjá sig þar til hún er skilin :-) Henni finnst voða gaman þegar stóru systkinin eru hjá okkur og ljómar öll og skríkir þegar þau koma. Enda eru þau svo góð og þolinmóð við skottið litla :-)

Hún elskar að fara út! og pantar að fá að fara út í vagn að sofa, það lærði hún hjá Hrefnu ofur-frænku þar sem hún er í pössun þegar foreldrarnir eru að vinna. Hún er rosalega sátt hjá henni, og hleypur til hennar ef það líður of langt milli heimsókna, til að mynda eftir veikindin hennar í haust.. þá var mín orðin leið á að hanga heima veik og á spítalanum..

Við óskum ykkur öllum nær og fjær gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það liðna.. Við förum inní nýtt ár með gleði og bros í hjarta :-)

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!

20081228
Jólakveðjur, Hlíðarás-álfarnir.

sunnudagur, desember 14, 2008

Afmæli ÞA og fleiri síðustu mánuði

Vorum að setja inn nýjar myndir - samansafn síðustu 2-3 mánaða.

Meðal annars afmæli ÞA, krakkarnir að búa til konfekt, EB að elda og fleira.

20081214

Góða skemmtun.

Frumsamin vísa úr Eglu eftir ÞA

ÞA flutti frumsamda vísu, sem hann samdi eftir að hafa lesið Eglu, og flutti á sýningu í skólanum. Video má finna á myndasíðunni okkar.

Egill skilinn eftir heima,
ekki eins og hann sé að dreyma.
Allir fóru til Yngvars afa,
þar var bæði glens og gaman.
Þriggja ára reið af stað,
yfir gras og moldartað.
Kom í veislu kvað þar vísu,
sem fór ekki útí níðvísu.
Yngvar afi var með mikið skegg,
gaf drengnum kuðunga og andaregg.

Höfundur ÞA 2008.