miðvikudagur, desember 31, 2008

Gleðilegt nýtt ár !

Við ætlum að fylgja fordæmi minnsta fjölskyldumeðlimsins og hoppa glöð og ánægð inn í nýtt ár.

Þetta ár sem er að líða hefur verið nokkuð viðburðaríkt, sér í lagi í tengslum við okkar nánustu, með djúpum lægðum um mitt sumar - en allt stefnir í ljómandi góðan endi.

Við notum því gamla góða frasann - peningar eru ekki allt ! - og segjum við alla sem við þekkjum, njótið þess sem virkilega skiptir máli !

Kær kveðja, Hlíðarás-álfarnir :-)

mánudagur, desember 29, 2008

Jólin 2008

Hæ, hæ.

Jæja, jólin afstaðin og áramótin að skella á :-)

Það er margt skemmtilegt búið að bralla hjá okkur í desember og um jólin, mikið bakað, föndrað og leikið sér á heimilinu. Stóri strákurinn okkar varð 11 ára! Stóra stelpan okkar bjó til kartöflukonfekt og færði öllum bekknum sínum, ekkert smá flott hjá henni! Litla skottið okkar er farin að tala voða mikið og er hin ljúfasta. Hún lærir ný orð á hverjum degi held ég bara. Hún gerir sig mjög skiljanlega og ef við skiljum hana ekki þá heldur hún áfram að tjá sig þar til hún er skilin :-) Henni finnst voða gaman þegar stóru systkinin eru hjá okkur og ljómar öll og skríkir þegar þau koma. Enda eru þau svo góð og þolinmóð við skottið litla :-)

Hún elskar að fara út! og pantar að fá að fara út í vagn að sofa, það lærði hún hjá Hrefnu ofur-frænku þar sem hún er í pössun þegar foreldrarnir eru að vinna. Hún er rosalega sátt hjá henni, og hleypur til hennar ef það líður of langt milli heimsókna, til að mynda eftir veikindin hennar í haust.. þá var mín orðin leið á að hanga heima veik og á spítalanum..

Við óskum ykkur öllum nær og fjær gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það liðna.. Við förum inní nýtt ár með gleði og bros í hjarta :-)

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!

20081228
Jólakveðjur, Hlíðarás-álfarnir.

sunnudagur, desember 14, 2008

Afmæli ÞA og fleiri síðustu mánuði

Vorum að setja inn nýjar myndir - samansafn síðustu 2-3 mánaða.

Meðal annars afmæli ÞA, krakkarnir að búa til konfekt, EB að elda og fleira.

20081214

Góða skemmtun.

Frumsamin vísa úr Eglu eftir ÞA

ÞA flutti frumsamda vísu, sem hann samdi eftir að hafa lesið Eglu, og flutti á sýningu í skólanum. Video má finna á myndasíðunni okkar.

Egill skilinn eftir heima,
ekki eins og hann sé að dreyma.
Allir fóru til Yngvars afa,
þar var bæði glens og gaman.
Þriggja ára reið af stað,
yfir gras og moldartað.
Kom í veislu kvað þar vísu,
sem fór ekki útí níðvísu.
Yngvar afi var með mikið skegg,
gaf drengnum kuðunga og andaregg.

Höfundur ÞA 2008.

sunnudagur, nóvember 02, 2008

Spítalaálfurinn okkar






Já hún litla skott fór á spítala í 3 daga. Kom heim í gær (laugardag).

Þetta byrjaði allt aðfaranótt mánudagsins með ælupest hjá henni, ældi nokkrum sinnum og var mikið safnað í þvottavélina þá nótt ;-)

Svo ældi hún næstu nótt einu sinni og héldum við að þetta væri bara að verða búið... en ekki var það svo gott. Hún fékk háan hita á miðvikudeginum og rauk uppí 40,1 þá um morguninn. Við fórum með hana á læknavaktina um hádegið og þar var kíkt á hana og vildi læknrinn meina að ekkert amaði að henni, þeas. ekkert í hálsi, eyrum osvfr.. þannig að hún bað okkur að fylgjast með henni og passa að hún drykki nóg.

Seinnipart miðvikudags mældum við litla skottið okkar og var þá hitinn kominn í 40,8 stig! okkur fannst það nú orðið ansi hár hiti og hringdum í lækninn sem við hittum og hún sagði fátt annað en að við gætum komið á læknavaktina með hana ef við vildum...

Sem betur fer þekkjum við til barnalæknis sem við hringdum í og ráðfærðum okkur við.. hann sagði okkur að fara með hana niðrá Barnaspítala hringsins og að hann myndi hringja á undan okkur. Við vorum komin þangað um fimm leitið seinnipart mið og var snúllan okkar rannsökuð í bak og fyrir og rétt fyrir miðnætti var okkur tjáð að hún væri með sýkingu í þvagi og það yrði að leggja hana inn.

Við vorum sem sagt í þrjá sólahringa með hana niðrá spítala og fékk hún sýklalyf í æð og var rannsökuð enn betur. Svo var það í gær í hádeginu sem hún fékk réttu sýklalyfin í gegnum munninn og þau héldust niðri þannig að okkur var óhætt að fara með hana heim.

Ofan á allt þá veiktist mamman að gubbupest og fleira og lá einn af þessum þrem dögum alveg domm... svo smitaðist það yfir á litlu skvís og byrjaði hún að æla og með niðurgang ofan í sýkinguna þannig að þetta var heldur betur mikið fjör!

Í dag sunnudag er hún orðin ágætlega hress, er dugleg að taka lyfin sín en er með niðurgang og borðar lítið sem ekkert.. þá er nú gott að vera enn á mömmubrjósti :-)

Mamman er að skríða saman eftir sína pest en pabbi er lagstur með svæsna ælupest :-(

já það er ástand hjá okkur Hlíðarásálfunum...


Látum fylgja með nokkrar myndir af skottinu okkar á spítalanum...

Heilsukveðjur frá okkur öllum og vonandi hafið þið það sem allra best!!

laugardagur, október 25, 2008

Snjór í október og fleira.

Það kom óvænt snjór í október, krökkunum (á öllum aldri) til ómældrar ánægju :-)
HR var hæst ánægð og ÞA og EB nutu sín vel.
Einnig afmæli pabba og mömmu, fallegt haust kvöld og fleira.
Október 2008
Góða skemmtun, Hlíðarás-álfarnir.

sunnudagur, september 21, 2008

Annað stutt labbi video

Þessi klippa er eldri en sú sem byrtist fyrr í mánuðnum, en í betri gæðum.

From VIDEO


Byrjun september

HR, ÞA og EB eru algerar dúllur.
HR er að æfa ýmiskonar svipbrigði á fullu !

From Byrjun september

Góða skemmtun.

laugardagur, september 13, 2008

Smá skot af HR að labba og dúllast

Þar sem það er eitthvað svo mikið að gera þessa dagana, þá líður aðeins lengra milli þess að við setjum inn nýjar myndir.
En, í staðinn skellum við tveimur stuttum myndskeiðum (úr síma) af HR.
Fyrst er brot af henni verandi sú algera dúlla sem hún alltaf er:


Hitt er síðan af henni að labba eftir ganginum:

Góða skemmtun :-)

laugardagur, ágúst 23, 2008

Ágústlok

HR skvísan okkar er byrjuð að labba alveg sjálf !
Næsti myndaskammtur mun ábyggilega sýna það, en núna eru það myndir af kátum krökkum.
Lok ágúst - 2008

HR fékk forláta bíl frá afa og brunar nú um allt.

þriðjudagur, ágúst 19, 2008

Sumar og sól í ágúst

Göngutúr í Mosó, baðtími hjá HR og fleira gott.
Ágúst mið-partur

Heima er bezt !

Ýmsar myndir.
Meðal annars stressaður köttur og mjög slök prinsessa :-)

Ágúst 200000008

Úti að leika

Meira sumar 2008

Nokkrar sumarmyndir

Alltaf gaman á sumrin.

Sumar 2008

HR okkar 1 árs !

Hún á afmæli í dag !

Krúttið okkar er orðin eins árs, vá maður.

HR 1 árs

Frábær veisla.
HR skemmti sér drottningar-lega við að opna pakka - og það var sko nóg af þeim.

Geysir - gýs og gýs - jæja, Strokkur amk

Alltaf gaman að skreppa í Haukadalinn, sérstaklega fyrir okkur álfana !

Geysir - 20080705

Allir skemmtu sér vel og höfðu gaman af.

Perlan - alltaf sígild

Alltaf gaman að skreppa í Perluna í Öskjuhlíð og fá sér ís :-)

Perlan og fleira - júlí 2008

Ferð í keilu

Krakkarnir skruppu í keilu með frænkum sínum.
Keila í júlí

Þar var sko mikið gaman og mikið fjör, enda þótt myndirnar hafi verið fáar vegna rafmagnsleysis.

mánudagur, júní 30, 2008

þriðjudagur, júní 17, 2008

Hæ, hó og jibbí-ey, það er kominn 17. júní !

Í dag er 17. júní !

Við gerðum ýmislegt skemmtilegt, meðal annars skruppum við niðrí miðbæ - Mosfellsbæjar og fengum afa og ömmu í kaffi og mat.

Einnig komu fleiri gestir í kaffi - mikið gaman.

20080617

Sumarkveðja,

Hlíðarás-álfarnir.

þriðjudagur, júní 03, 2008

Dragör, Danmörku eftir ráðstefnu á Mallorca

Eftir ráðstefnu um "Bráðnun Grænlandsjökuls" á Mallorca (ráðstefna á vegum European Science Foundation) í lok maí var ég einn dag í Dragör, Danmörku.  Þetta var vegna þess að flugið frá Mallorca lenti á Kastrup um miðnætti og flugið heim var ekki fyrr en rétt fyrir miðnætti daginn eftir.

Fyrir tilviljun valdi ég þetta hótel, okkur hjónunum fannst það líta út fyrir að vera sæmilega nálægt (sem það var nú eiginlega ekki, um 8 km frá flugvellinum) og einnig var það ágætlega ódýrt.

Þetta reyndist ágætis staður til að eyða degi á, fallegur gamall bær.

Dragör - Danmörku

Nokkrar myndir sem ég tók á ferðalaginu fylgja.  Dagskráin á ráðstefnunni var býsna stíf.  Ég tók heilar 2 myndir, af svölunum á hótelinu og er önnur þeirra í albúminu.  Daginn sem ég hafði lausan í Dragör tók ég þó nokkuð fleiri myndir (enda auðvelt að toppa 2).

mánudagur, maí 26, 2008

Sumarskvísan okkar

Ég bara varð að deila þessari mynd af litlu skvís með ykkur...

Hún fékk Barbie sumar sólhatt frá ömmu :-) og var ekkert smá ánægð með hann.

Tók þessa mynd á símann minn þar sem minn heittelskaði er erlendis. Fór í dag og verður fram á föstudagskvöld. Er að halda fyrirlestur á ráðstefnu á Mallorca... væri alveg til í að vera þar hjá honum get ég sagt ykkur!!!


Setjum inn fullt af skemmtilegum myndum fljótlega, nóg er nú til af þeim á bænum ;-)


Knús og kossar til ykkar allra :*


Hlíðarásgengið

miðvikudagur, maí 21, 2008

Afmæli EB - 8 ára

Skvísan okkar orðin 8 ára :-)

Fyrri afmælisveislan var á afmælisdaginn sjálfann og komu margir góðir gestir og var mikið fjör á bænum!! Hún fékk fullt af flottum gjöfum og var hæstánægð með daginn sinn.

Svo var bekkjar-skvísu afmæli á þriðjudaginn og ekki var það minna fjör!! :-)

Skvísurnar voru sóttar í skólann og komu þær í skrúðgöngu uppá bílaplan þar sem kaggarnir okkar tveir biðu eftir þeim.. Þegar heim var komið tók við heljarinar stuð. Pylsupartý - pakkaleikur - útileikir - kökuveisla - Bratz mynd og fleira skemmtilegt. Fékk skvísan fullt af æðislegum gjöfum frá vinkonum sínum og var alveg í skýjunum með daginn.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndir úr báðum afmælunum :-)

Afmæli EB

Kærar kveðjur héðan úr veisluhúsinu ;-)

Hlíðarás-gengið

föstudagur, maí 16, 2008

Jan - feb, 2008

Venjulega eru þetta býsna rólegir mánuðir, en ...

2008 Jan - Feb


... í kringum okkur er engin lognmolla ;-)

Þegar litla skvís stækkar og dafnar svona hratt og er að læra eitthvað nýtt á hverjum degi þá líður tíminn svo sannarlega hratt, allt of hratt......

Svo er svo gaman að sjá litlu dúlluna okkar þegar stóru systkinin hennar koma til okkar. Hún gjörsamlega ljómar öll og klappar saman lófunum og skríkir hátt og hefur ekki af þeim augun :-) Þau eru líka svo ótrúlega góð við hana og þolinmóð og kenna henni hvernig eigi að leika sér fallega. Hún ætlar að vera jafn kurteis og góð og stóru systkinin :-) ... Mömmu og pabba líst vel á það!


Þar til næst...
Hlíðarás-gengið :*

Sumarbústaðarferð í mars, 2008

Snjór, snjór, snjór ...

Allt á kafi í snjó þegar við komum !
Það var alveg meiriháttar.
Fleiri myndir með því að fylgja tenglinum hér að neðan.

Bústaður í mars 2008

Kær kveðja,
Hlíðarásinn.