laugardagur, mars 13, 2010

Litli kútur, söngstjarna og bollukaffi

Litli snáðinn okkar, SL, er brosmildur og kátur strákur. Stóru systur hans og stóri bróðir eru líka dugleg, ásamt foreldrum, að brosa og gantast í honum.

Mamma bjó til rosalega flott bollu-hjarta fyrir Bolludaginn (raunar daginn fyrir bolludaginn). Fengum góða gesti í kaffi og átum fullt af bollum.

SL skrapp í bað, í þetta sinn voru teknar myndir :-)

Það snjóaði loksins aðeins, en stóð allt of stutt. Náðum þó að skreppa út og njóta snjósins, búa til snjókarl og svoleiðis.

EB umbreytti svo HR í söngstjörnu. Vonandi virkar myndbrotið í albúminu.

20100313

Vorkveðjur frá Hlíðarás-álfunum.