Fylgstu með því sem gerist þegar te-poki er settur í heitt vatn :-)
mánudagur, nóvember 15, 2010
miðvikudagur, október 27, 2010
Neon-ball og haust
Nokkrar gamlar “hoppi” myndir af HR, EB að fara á neon-ball og haustið er komið :-)
![]() |
| 20101010 |
Haustkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
Sumarbústaðarferð 2010
Fórum í frábæra viku sumarbústaðarferð í sumar, öll fjölskyldan, afi og Sóley frænka.
Fengum besta veður sem hægt var að óska sér, úrhellis rigningu fyrsta daginn, glampandi sól og steikjandi hita í 5 daga og svo skýjað síðasta heila daginn.
![]() |
| 20100926-b |
Sumarkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
Sumarfjör og flott hár
Bleika hverfið, sumarbústaður síðari, helgarferð, systkina-hittingur ömmu Helgu, hressir strákar og stelpur og fullt af flottum hárgreiðslum.
![]() |
| 20100926-a |
þriðjudagur, september 21, 2010
sunnudagur, ágúst 29, 2010
Sumarið er tíminn …
Fyrir ferðir að Gullfossi og Geysi, meðal annars :-)
![]() |
| 20100727 |
Einnig afmælisveislur (síðbúin fyrir EB) og annarskonar veislur fyrir farfugla :-)
Sumarkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
miðvikudagur, ágúst 25, 2010
“Nýjar” myndir – frá byrjun júlí
Myndir frá 17. júní í Mosó, ættarmóti á Snæfellsnesi, blómum og krúttum.
Erum að prufa að hafa aðgang að myndunum takmarkaðan, þannig að þeir sem vilja sjá myndir mættu gjarnan senda okkur línu.
EB skrautleg á 17. júní hátíð.
Sumarkveðjur, Hlíðarás-álfarnir.
föstudagur, ágúst 20, 2010
sunnudagur, ágúst 15, 2010
Fyrstu skref SL
Segjum nú ekki alveg að hann sé farinn að labba, en óhætt að kalla þetta fyrstu skrefin með stuðningi leikfangakassa.
fimmtudagur, júlí 01, 2010
sunnudagur, júní 20, 2010
Ferðalag, sundmót og aska
Þ með mæligræjur úti á svölum.
EB á sundmóti á Akranesi.
Ferðalag austur að Vík, aska, aska, alls staðar.
![]() |
| 20100611 |
Sumarkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
Afmæli EB, ferðalag og fleira
Bekkjarafmæli stóru skvísunnar okkar.
Ferð í Haukadalinn.
Róló hjá afa.
![]() |
| 20100524 afmæli |
Sumarkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
Meira hoppí skoppí
HR að hoppa og skoppa.
Fallegar straumendur við Haukadalskirkju.
HR blómarós.
![]() |
| 20100524 |
Sumarkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
Sundmót og róló
EB tók þátt á sundmóti í Keflavík með Ægi og stóð sig mjög vel !
Einnig krútt á róló.
![]() |
| 20100515b |
Sumarkveðja, Hlíðarás-áflarnir.
sunnudagur, maí 09, 2010
Bústaðarferð um miðjan apríl
Fórum í góða fjölskyldu-bústaðar-ferð um miðjan apríl. Höfðum stúkustæði á gosmökkinn frá Eyjafjallajökli.
![]() |
| 20100419 |
Sumarkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
Skvísur, systkini og fjölskylduveisla
Stelpurnar voru að skvísast, systkinin að krúttast og fín fjölskylduveisla.
![]() |
| 20100505 |
Sumarkveðja, Hlíðarás-álfarnir.
Myndir af gosstöðvunum
Fór með Þorsteini J. af UST að færa svifryksmælinn í Vík. Fengum gott veður, sér í lagi var bjart yfir gosstöðvunum á leiðinni austur.
Tók slatta af myndum – merkilegt hvað myndir eru alltaf skemmtilegri ef maður tekur þær sjálfur – væntanlega af því að þá upplifir maður stemninguna sjálfur.
![]() |
| Eldgosið í Eyjafjallajökli |
Bestu kveðjur, Þröstur og fjölskylda.
mánudagur, apríl 12, 2010
Páskar, skírn og fleira
Heilmikið búið um að vera frá því síðast.
Þ fór á ráðstefnu í Kraká og náði að taka örfáar götumyndir.
EB, HR,H og Þ fóru í göngutúr þar sem við rákumst á lítinn kettling til að leika við.
Páskar, páskaegg og allt sem því fylgir kom öllum í hátíðarskap :-).
Skírn SL og undirbúningur. Meðal annars meistarastykki H í kökugerð og margt fleira.
Ferð Þ, H, HR og SL í Perluna …
![]() |
| 20100411 |
Nú styttist í sumarið :-)
Kveðja, Hlíðarás-álfarnir.
laugardagur, mars 13, 2010
Litli kútur, söngstjarna og bollukaffi
Litli snáðinn okkar, SL, er brosmildur og kátur strákur. Stóru systur hans og stóri bróðir eru líka dugleg, ásamt foreldrum, að brosa og gantast í honum.
Mamma bjó til rosalega flott bollu-hjarta fyrir Bolludaginn (raunar daginn fyrir bolludaginn). Fengum góða gesti í kaffi og átum fullt af bollum.
SL skrapp í bað, í þetta sinn voru teknar myndir :-)
Það snjóaði loksins aðeins, en stóð allt of stutt. Náðum þó að skreppa út og njóta snjósins, búa til snjókarl og svoleiðis.
EB umbreytti svo HR í söngstjörnu. Vonandi virkar myndbrotið í albúminu.
![]() |
| 20100313 |
Vorkveðjur frá Hlíðarás-álfunum.
laugardagur, febrúar 06, 2010
Áramótin og þar í kring
“Nýjar” myndir síðan um áramótin og þar í kring.
Mikið stuð að skjóta upp flugeldum, enda þótt sumir væru aðeins feimnir við það að köflum.
![]() |
| 20100101 |
mánudagur, janúar 25, 2010
Litli spaugarinn okkar hún HR
Pabbi var eitthvað að tilkynna að hann væri að fara í sturtu á laugardagsmorgun. Þá heyrist allt í einu í HR þar sem hún situr við eldhúsborðið í stólnum sínum:
“Hver er að fara í sturtu – essasú ?”
fimmtudagur, janúar 14, 2010
Molar frá HR okkar
- Ég er ekki þvottavél!
Um daginn var ég að gantast með HR inni á baði. Þvottakarfan stóð tóm og ég sagðist ætla að setja hana ofaní að gamni. Þá svaraði skvísa: “Ég er ekki þvottavél!” - Ég er Harpa!
Við matarborðið sagðist HR vera ljón. Pabbi útskýrði að ljón væru mjög dugleg að borða, þá heyrðist snarlega í HR: “Ég er Harpa!”
















