Skvísan okkar orðin 8 ára :-)
Fyrri afmælisveislan var á afmælisdaginn sjálfann og komu margir góðir gestir og var mikið fjör á bænum!! Hún fékk fullt af flottum gjöfum og var hæstánægð með daginn sinn.
Svo var bekkjar-skvísu afmæli á þriðjudaginn og ekki var það minna fjör!! :-)
Skvísurnar voru sóttar í skólann og komu þær í skrúðgöngu uppá bílaplan þar sem kaggarnir okkar tveir biðu eftir þeim.. Þegar heim var komið tók við heljarinar stuð. Pylsupartý - pakkaleikur - útileikir - kökuveisla - Bratz mynd og fleira skemmtilegt. Fékk skvísan fullt af æðislegum gjöfum frá vinkonum sínum og var alveg í skýjunum með daginn.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndir úr báðum afmælunum :-)
![]() |
| Afmæli EB |
Kærar kveðjur héðan úr veisluhúsinu ;-)
Hlíðarás-gengið

1 ummæli:
Svona á þetta að vera, til hamingju með stjúpdótturina .knus Asdis
Skrifa ummæli