Eftir ráðstefnu um "Bráðnun Grænlandsjökuls" á Mallorca (ráðstefna á vegum European Science Foundation) í lok maí var ég einn dag í Dragör, Danmörku. Þetta var vegna þess að flugið frá Mallorca lenti á Kastrup um miðnætti og flugið heim var ekki fyrr en rétt fyrir miðnætti daginn eftir.
Fyrir tilviljun valdi ég þetta hótel, okkur hjónunum fannst það líta út fyrir að vera sæmilega nálægt (sem það var nú eiginlega ekki, um 8 km frá flugvellinum) og einnig var það ágætlega ódýrt.
Þetta reyndist ágætis staður til að eyða degi á, fallegur gamall bær.
![]() |
| Dragör - Danmörku |
Nokkrar myndir sem ég tók á ferðalaginu fylgja. Dagskráin á ráðstefnunni var býsna stíf. Ég tók heilar 2 myndir, af svölunum á hótelinu og er önnur þeirra í albúminu. Daginn sem ég hafði lausan í Dragör tók ég þó nokkuð fleiri myndir (enda auðvelt að toppa 2).

Engin ummæli:
Skrifa ummæli