miðvikudagur, desember 31, 2008

Gleðilegt nýtt ár !

Við ætlum að fylgja fordæmi minnsta fjölskyldumeðlimsins og hoppa glöð og ánægð inn í nýtt ár.

Þetta ár sem er að líða hefur verið nokkuð viðburðaríkt, sér í lagi í tengslum við okkar nánustu, með djúpum lægðum um mitt sumar - en allt stefnir í ljómandi góðan endi.

Við notum því gamla góða frasann - peningar eru ekki allt ! - og segjum við alla sem við þekkjum, njótið þess sem virkilega skiptir máli !

Kær kveðja, Hlíðarás-álfarnir :-)

Engin ummæli: