Allt í einu tók HR okkar upp á því að vera með smá "grín", setti sokk á hendurnar og lét "brúðuna" segja wha-wha !
Okkur foreldrunum fannst þetta bráðfyndið - kannski fátt sem litlu krúttin manns gera sem foreldrum finnst ekki sniðugast af öllu !
Hvað sem því líður, getið þið dæmt sjálf
Um daginn vorum við síðan að keyra heim að kvöldi til og í útvarpinu var hið ágæta lag með David Bowie, Changes. Það ómaði undir á leiðinni og síðan þegar það var búið heyrðist aftur í:
"Meira Changes !"
Ótrúlegt hvað þau geta verið fljót að ná svona textum.
Baráttukveðja á Frídegi verkalýðsins !
Hlíðarás-álfarnir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli