sunnudagur, október 11, 2009

Bústaðarferð og heima við

Fórum í bústað í Húsafelli í ó-blíðu haustveðri.  Rok, rigning, snjór - en engu að síður mjög gaman :-)

Afi var með og við höfðum það virkilega gott.  Skruppum í göngutúra í "veðrinu" og þá var hressandi að komast í heitan pott strax á eftir.

Lególas er núna eina kisan hjá okkur, Fróði kallinn fór í fóstur (komst reyndar í algera sælu samkvæmt því sem við höfum frétt og sjáum).  Hann nýtur sín mun betur svona í friði, enda var Fróði ansi duglegur að bæla hann.  Virkilega sæt mynd af honum að kúra hjá mömmu og í Bratz töskunni hennar EB.

20091010 - c

Hlíðarás-álfarnir.

Engin ummæli: