Eftir skoðun ljósmóður voru þau spurð hvort þau vildu gangsetningu. Læknirinn hafði beðið þau um að mæta þennan dag í gangsetningu, þannig að þau ákváða að halda því plani. Enda búið að gera ráðstafanir með eldri systkinin mín þrjú.
Um 10:30 var belgurinn á mömmu sprengdur og kom þá í ljós að legvatnið var aðeins grænt (sem þíðir að ég var farinn að hafa hægðir, úpps) og því hefði ekki verið gott að bíða lengur.
Mamma fékk “drip” frá 10, fyrst 6 ml/klst sem síðan var smá saman aukið og var orðið nærri 100 ml/klst um kl. 20.
Lítið gerðist yfir daginn, kollurinn færðist líðið niður. Mamma var samt með hörku og alvöru hríðar (kramdi hönd pabba vel og rækilega). Glaðloftið virkaði þó ansi vel og einnig mænurótardeyfingin sem kom aðeins síðar um daginn.
Klukkan 20:15 var svo loks keisari ákveðinn.
Ég kom svo í heiminn 21:05 foreldrum mínum til mikillar ánægju :-)
Mamma var rosa glöð að ekki þurfti að svæfa hana í þetta skiptið (þurfti þegar HR kom í heiminn). Pabbi og mamma gátu því bæði tekið á móti mér strax og ég kom út í heiminn!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli