- Ég er ekki þvottavél!
Um daginn var ég að gantast með HR inni á baði. Þvottakarfan stóð tóm og ég sagðist ætla að setja hana ofaní að gamni. Þá svaraði skvísa: “Ég er ekki þvottavél!” - Ég er Harpa!
Við matarborðið sagðist HR vera ljón. Pabbi útskýrði að ljón væru mjög dugleg að borða, þá heyrðist snarlega í HR: “Ég er Harpa!”
Engin ummæli:
Skrifa ummæli